header image headerimage    
 


MAGGA DÓRA BLOGGAR:
Magga Dóra lét gamminn geysa.

FÓLK:
Brynja*
Elma Hlín
Fangor*
Hayley
Helga*
Hex
Hjalli
Hrefna*
Hrönn
MIT Maggan
Ólafur Fjalar
Raritet
Spörri
Tóti*
Trigger*
Þórólfur
*Bloggsími Hex

Skemmtilegheit vikunnar: Kingpin?
Menningarnótt
I.P. Freely

HLEKKIR:
Baggalútur
Dave Barry
Dilbert
Donald Norman
Helen
mbl
PC&Pixel
Phd
Userfriendly
Wired



GAMALT OG GOTT:




24.8.03

Nýtt blogg!
 
Nú er að líða ár frá því að ég byrjaði að blogga og mér finnst þetta svo skemmtilegt að ég er að hugsa um að halda því bara áfram. Aukinheldur fékk ég í útskriftargjöf frá Þrumunum (Takk Edda og Hrönn!) lénið www.maggadora.com (þær eiga líka heiðurinn að forsíðunni). Ég hafði mig loksins í að setja upp vefinn (les. biðja Alex að setja upp vefinn) en þar er lítið komið enn nema blogg. Og náttúrulega forsíðan. Edda og Hrönn hafa í framhaldi af því að vefa þessa síðu ákveðið að snúa sér algerlega að grafískri hönnun.

Þannig að héðan í frá verður bloggað af maggadora.com. Bloggið verður tvískipt. Annarsvegar hefðbundið blaður og þvaður og hinsvegar blaður sem ég ætla að tileinka nytsemi því eins og ég er alltaf að tönnlast á: "Þetta snýst allt um usability!".

Ég býð ykkur því velkomin á
Magga Dóra bloggar
og
It's all about usability!

:)
MD

P.S.
Minni á að breyta tilvísunum þar sem við á.



0 Blogger comments

This page is Powered By Blogger. Isn't yours?